Sterk íslensk vörumerki

Endurmörkun, staðfærsla, hönnun og vörumerkjarannsóknir
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Krios merki
Vörumerkjastefna
PREPARED WITH POWER
Áskorun
Krios leitaði til brandr við stofnun fyrirtækisins til að byggja upp vörumerkið frá grunni. Verkefnið fól í sér að móta staðfærslu, lykilskilaboð og sjónræna ásýnd, ásamt vörumerkjahandbók. Áframhaldandi ráðgjöf styður við uppbyggingu vörumerkisins og tryggir samræmi í allri framsetningu.
Grein
Innviðir og orka
Verkhönnun merki
Vörumerkjastefna
HUGVIT Í NÁNU SAMSTARFI SKAPAR BETRI LAUSNIR
Áskorun
Verkhönnun leitaði til brandr til að skerpa á vörumerkinu og styrkja það bæði inn á við og út á við. Með vörumerkjarýni var lagður grunnur að skýrari stefnu og sameiginlegum skilningi á því sem fyrirtækið stendur fyrir, með það að markmiði að efla vörumerkið í daglegu starfi og samskiptum við viðskiptavini.
Grein
Verkfræði og ráðgjöf
Blue Car Rental merki
Vörumerkjastefna
SIMPLIFY THE RIDE
AMPLIFY THE JOY
Yfirlit
Blue Car Rental leitaði til brandr því stjórnendur vildu draga það betur fram hvað vörumerkið stóð þegar fyrir og gera það sýnilegra. Þannig vildu þau styrkja stöðu sína enn frekar á markaði.
Grein
Bílaleiga
Orkubú Vestfjarða merki
Vörumerkjastefna
ÖRUGG OG RAFMÖGNUÐ FRAMTÍÐ
Yfirlit
Orkubú Vestfjarða var traust og rótgróið fyrirtæki með sterka tengingu við samfélagið, en vörumerkið var orðið íhaldssamt og lítið sýnilegt. Verkefnið var að færa styrkleikana skýrar fram, skerpa hlutverk Orkubúsins á Vestfjörðum og byggja vörumerki sem tengir saman áreiðanleika, samfélag og framsækna orkuuppbyggingu.
Grein
Orka og veitur
HS Orka merki
Vörumerkjastefna
HS ORKA
Yfirlit
Fólk þekkti nafnið en síður hlutverk fyrirtækisins og sérstöðu. Verkefnið var að styrkja vörumerkið með áherslu á nýsköpun, ábyrgð og virðingu fyrir náttúru Íslands.
Grein
Orka
Nobile merki
Vörumerkjastefna
POWERING PROGRESS
Yfirlit
Nobile starfar í orkugeiranum og vildi gera flókið virðistilboð skýrara og skiljanlegra í augum viðskiptavina.
Grein
Orka (Austurríki)
Hagkaup merki
Vörumerkjastefna
GERÐU VEL VIÐ ÞIG
Áskorun
Stjórnendur vildu meðal annars ná betur utan um markaðsstarf, skerpa á reglum og einfalda samskipti út á við í tengslum við vörumerkið, sem og styrkja vörumerkið enn frekar í aukinni samkeppni á markaði.
Grein
Dagvöruverslun
1944 merki
Vörumerkjastefna
LITRÓF EINFALDRA RÉTTA SEM AUÐGA LÍFIÐ
Áskorun
Ný ásýnd 1944 var unnin af starfsfólki brandr m.a. til þess að skýra línur þess í hugum neytenda. Breidd í vöruframboði 1944 var nýtt til þess að ýta undir fjölbreytileika og opna á möguleika allra Íslendinga að spegla sig í vörumerkinu.
Grein
Matvæli og tilbúnir réttir
Bónus merki
Vörumerkjastefna
MEÐ ÞÉR Í LIÐI
Áskorun
Stjórnendur Haga vildu efla samband við viðskiptavini, skilja þá betur og styrkja ásýnd vörumerkisins inn á við og út á við.
Grein
Dagvöruverslun
Olís merki
Vörumerkjastefna
VINUR VIÐ VEGINN
Áskorun
Olís hafði sterkt nafn og áralanga reynslu á íslenskum markaði. Vörumerkið var kunnuglegt og traust, en sérstaða og tryggð stóðu veikar. Áskorunin var því ekki að gera Olís sýnilegra, heldur að skilgreina skýrari ástæðu fyrir því að velja vörumerkið.
Grein
Eldsneyti og þjónustustöðvar

Vörumerkið þitt á skilið stutt spjall

Hvort sem þú vilt mæla hvar vörumerkið þitt stendur, byggja sterkari stefnu eða sjá hvernig þú stendur miðað við samkeppnina, þá byrjar það á samtali. Engin sölupitch. Bara heiðarleg skoðun á stöðu þinni og hvort við getum aðstoðað.