Respectful Innovation.

HS Orka hafði sterka vitund, en takmarkaða merkingu í huga almennings. Fólk þekkti nafnið, en síður hlutverk fyrirtækisins, sérstöðu þess eða það sem gerði HS Orku ólíka öðrum orkufyrirtækjum. Verkefnið var að færa sterka sjálfsmynd fyrirtækisins skýrar út á markaðinn — og byggja vörumerki þar sem nýsköpun, ábyrgð og virðing fyrir náttúru mynda eina heild.

Þekkt nafn, en óskýr merking.

20%
Þekkja HS Orku frekar eða mjög vel
24%
Geta sagt hvert meginhlutverk HS Orku er
16–17%
Viðskiptavina telja HS Orku einstakt
70%
Starfsfólks telja HS Orku einstakt

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Þekkt nafn, en fáir vissu hvað stóð á bak við það.

HS Orka mældist sterkt í vitund, en þekkingin var grunn. Fólk þekkti nafnið, en vissi síður hvað fyrirtækið gerði, hvert hlutverk þess var eða hvað aðgreindi það frá öðrum orkufyrirtækjum. Aðeins 20% töldu sig þekkja HS Orku frekar eða mjög vel og aðeins 24% gátu sagt hvert meginhlutverk fyrirtækisins væri.

Á sama tíma var mikið bil milli sjálfsmyndar og ímyndar. Starfsfólk upplifði HS Orku sem framsækið, einstakt og áhugavert fyrirtæki, en sú mynd skilaði sér ekki nægilega út á við. Verkefnið var að minnka þetta bil og byggja skýrari, jákvæðari og aðgreinanlegri stöðu.

3.2/5

HS Orka naut takmarkaðs trausts meðal almennings.

24%

vita hvert meginhlutverk HS Orku er.

Við leituðum að bilinu milli sjálfsmyndar og ímyndar.

Rannsóknin sameinaði innri rýni, markaðsrýni og ytri rýni. Viðtöl við innri og ytri hagaðila, Brandr-vísitala, mannauðsvísitala, samkeppnisgreining og sérsniðin könnun voru lögð saman til að skilja hvað HS Orka var í raun — og hvað almenningur sá.

Sterk sjálfsmynd skilaði sér ekki út á við.

Starfsfólk sá HS Orku sem framsækið, einstakt og áhugavert fyrirtæki, en almenningur tengdi mun minna við þessa eiginleika. Bilið milli sjálfsmyndar og ímyndar var því eitt skýrasta viðfangsefnið.

Vitundin var sterkari en skilningurinn.

Fólk þekkti nafnið HS Orka, en hafði takmarkaða þekkingu á hlutverki fyrirtækisins og hvað það gerði öðruvísi. Aðeins 24% gátu sagt hvert meginhlutverk þess væri.

Nýsköpunin var sérstaðan sem vantaði í frásögnina.

Innri og B2B-rannsóknir drógu fram nýsköpun, Auðlindagarðinn og sjálfbærni sem raunverulega styrkleika HS Orku. Tækifærið var að gera þessa styrkleika sýnilegri og byggja skýrari frásögn í kringum þá.

Frá orkuframleiðanda yfir í Respectful Innovation.

Stefnumótunin færði HS Orku frá því að vera fyrst og fremst skilgreint út frá framleiðslu yfir í skýrari hugmynd um hvernig fyrirtækið vinnur og hvaða hlutverki það gegnir. Kjarninn varð Respectful Innovation — að nýsköpun, ábyrgð og virðing fyrir náttúru þurfi alltaf að fara saman.

Sú staða tengdi saman þrjá styrkleika sem rannsóknin hafði þegar dregið fram: nýsköpun, sjálfbærni og samfélagslegt hlutverk. Þannig fékk HS Orka skýrari frásögn um hvernig orka verður að tækifærum án þess að missa sjónar á auðlindunum og samfélaginu sem fyrirtækið byggir á.

brandr didn't write us a slogan. They wrote us a filter. Every product decision we've made in eighteen months has gone through "would the people who live here actually want this?" — and most of the answers have been clearer than we expected.

Sigurður Hannesson
CEO · Blue Car

Arfleifðin varð að kerfi fyrir framtíðina.

Auðkenniskerfið byggir áfram á þekktu HS Orku-merki, en skerpti það og gerði það aðgreinanlegra. Form merkisins varð grunnur að stærra sjónrænu kerfi þar sem rauði liturinn, íslenskt landslag, jarðvarmi og innviðir fyrirtækisins vinna saman að skýrari og sterkari heild.

Kerfið var hannað til að endurspegla Respectful Innovation — með jarðbundinni litapallettu, raunverulegum ljósmyndum, skýrri upplýsingahönnun og sveigjanlegri notkun yfir allt frá vef og kynningarefni yfir í merkingar, vinnufatnað og iðnaðarumhverfi.
Merkið varð grunnform fyrir allt auðkennið. Rauði liturinn virkar sem skýr áherslulitur, en aðrir litir eru sóttir í náttúru og rekstrarumhverfi HS Orku. Ljósmyndir eiga að vera raunverulegar, ófilteraðar og sýna fólk, staði og veður eins og þau eru. Letur, tákn og gagnamiðlun fylgja sama markmiði: einfaldleika, skýrleika og trúverðugleika.

Í hverja hillu.

Við vinnum í áföngum frekar en spretti, með skýrri afhendingu í hverjum áfanga, eftirlitspunkti hjá viðskiptavininum og hreinni afhendingu til næsta stigs. Svona fór Bónus í gegnum okkar.
01 · janúar — febrúar 2024 · 6 vikur

Rannsókn og flokksrýni

Brandr Index grunnlína fyrir matvöruflokkinn, grunnrannsókn meðal kaupenda og starfsfólks, og viðtöl við Bónus teymið. Afurð: flokksskýrsla og eins síðu staðfærsluminnisblað.
02 · mars — apríl 2024 · 6 vikur

Stefna og staðfærsla

Staðfærsluvinnustofur með stjórnendum Bónus, vörumerkjabyggingarrýni og raddblærstefna. Afurð: samþykkt vörumerkjastefna og grænt ljós fyrir auðkennisáfangann.
03 · maí — ágúst 2024 · 14 vikur

Auðkenniskerfi

Fínstilling merkis, litar, leturs og ljósmyndastefnu með Saffron, útfært í verslun, umbúðum og stafrænu. Afurð: vörumerkjahandbók og eignasafn.
04 · september — desember 2024 · rúllandi

Útfærsla

Skiltagerð og leiðbeiningar í verslun, umbúðir fyrir eigin vörumerki, herferð og starfsmannaefni, raðað eftir mest sóttum yfirborðum fyrst. Afurð: samkvæmt vörumerki á hverjum snertipunkti viðskiptavinar.

Skýrari saga fyrir fyrirtæki sem hafði meira að segja.

Úr vörumerkjarýninni varð til skýrari staðfærsla, sameiginleg frásögn og auðkenniskerfi sem tengir betur saman það sem HS Orka er innanhúss og hvernig fyrirtækið birtist út á við. Respectful Innovation varð rauði þráðurinn í gegnum stefnu, skilaboð og sjónræna tjáningu.
Respectful Innovation — sameiginleg staðfærsla vörumerkisins
3 skilaboðasúlur — Nature · Opportunity · Community
Nýtt auðkenniskerfi — merki, litir, letur, ljósmyndir og tákn
Ein skýr rödd — Confident · Optimistic · Thoughtful
Eitt kerfi, margir snertifletir — vefur, samfélagsmiðlar, merkingar, kynningarefni og iðnaðarumhverfi

Vörumerkið þitt á skilið  30 mínútna samtal.

Hvort sem þú vilt mæla hvar vörumerkið þitt stendur, byggja sterkari stefnu eða sjá hvernig þú stendur miðað við samkeppnina, þá byrjar það á samtali. Enginn sölupitch. Bara heiðarleg skoðun á stöðu þinni og hvar við gætum hjálpað.