Vörumerkið er
hjartað og heilinn í starfsemi allra fyrirtækja
Við breytum því hvernig fólk skynjar vörumerkið þitt í tölur sem þú getur brugðist við, og áætlun um hvert á að fara næst
3þ
Þátttakendur í panel
200+
íslensk vörumerki nota vísitölu
30
Þættir mældir í 4 víddum
9ár
Af gagnasöfnun
brandr vísitölur
Veldu mælingu sem svarar spurningunni!
Vörumerkið mótast í upplifun starfsfólks og viðskiptavina. Ef þú mælir aðeins aðra hliðina sérðu aðeins hálfa mynd. Mældu báðar, hvora í sínu lagi eða saman, og fáðu skýra mynd af styrk vörumerkisins.

brandr vísitala
Rýndu í stefnuna með augum viðskiptavina.
Kannar
Mælir
Afurð
Best fyrir

brandr vísitala vinnustaðar
Þegar þú vilt skilja hvernig starfsfólkið upplifir vörumerkið innan frá.
Kannar
Mælir
Afurð
Best fyrir
Frá innsýn í aðgerð
Frá könnun til ákvörðunar
Ferlið er það sama hvort sem þú keyrir brandr vísitölu, brandr vísitölu vinnustaðar, eða hvoru tveggja. Það tekur þig fimmtán mínútur að setja upp könnunina, þú færð niðurstöður innan tveggja vikna ásamt skýrum ábendingum á tækifæri til umbóta og þær aðgerðir sem henta þér til að ná árangri.
01
Sendu út könnun
Safnaðu markvissri innsýn frá viðskiptavinum eða starfsfólki með könnun sem er sniðin að stefnumótandi áherslum fyrirtækisins. Hún er tilbúin til útsendingar og tekur aðeins fjórar mínútur að svara, sem stuðlar að góðri svörun.
.png)
02
Greindu niðurstöðurnar strax
Rauntímagreining umbreytir svörunum í skýra innsýn í styrk vörumerkisins, viðhorf og samræmi. Engir flóknir töflureiknar og engin bið eftir úrvinnslu.
.png)
03
Sjáðu hvað skiptir mestu máli
Brandr dregur fram mynstur og forgangsatriði í gögnunum svo þú sjáir hvað þarfnast athygli. Niðurstöðurnar sýna hvar bil er milli stefnu fyrirtækisins og upplifunar fólks.
.png)
04
Bregstu við
Gríptu til aðgerða út frá niðurstöðunum og fylgstu með þróuninni yfir tíma. Endurtaktu mælingar reglulega til að sjá hvernig staðan breytist og til að meta hvort aðgerðirnar skili árangri.
.png)
brandr Index
Mældu hið ómælanlega
brandr vísitalan færir þér innsýn í hvernig viðskiptavinir skynja og upplifa vörumerkið þitt. Nákvæmar greiningar okkar einfalda flókin gögn og niðurstöður eru settar fram á einfaldan og skýran máta.
01 · Vídd
Aðgreining
Hversu skýrt vörumerkið sker sig úr í sínum flokki. Sú vídd sem spáir best fyrir um vöxt til lengri tíma.
02 · Vídd
Markaðshlutun
Hvort vörumerkið höfðar til rétta markhópsins og laðar að þá viðskiptavini sem þú vilt ná til.
03 · Vídd
Skynjun og ímynd
Þeir eiginleikar, tilfinningar og hugrenningatengsl sem vakna þegar fólk hugsar um vörumerkið.
04 · Vídd
Samfélagsleg ábyrgð
Hvernig viðskiptavinir meta afstöðu vörumerkisins til sjálfbærni og siðferðis og hlutverk þess í samfélaginu.
Prófaðu ókeypis
Allar upplýsingar um vörumerkið þitt á einum stað.
Mælaborðið breytir gögnum í skýra innsýn sem styður betri ákvarðanir og mælanlegan vöxt.
Byrjaðu að mæla

Markaðsforysta
Rökstyðja fjárfestingu
Áskorunin
Tengja fjárfestingu í vörumerkinu við mælanlegan árangur.
Hvernig brandr vísitalan hjálpar
brandr vísitalan sýnir þróun lykilmælikvarða, ber vörumerkið saman við samkeppnina og leiðir í ljós hvort markaðsaðgerðir styrki það.
Stofnandi / kynningarteymi
Móta skýra
sérstöðu
Áskorunin
Skilja markaðinn og finna rými sem vörumerkið getur trúverðuglega tekið sér.
Hvernig brandr vísitalan hjálpar
brandr vísitalan kortleggur væntingar markhópsins og samkeppnislandslagið og skapar traustan grunn fyrir skýra staðfærslu.
Forstjóri / stjórn
Meta þörf á endurmörkun
Áskorunin
Ákvarða hvort endurmörkun sé nauðsynleg og hvar breytinga sé raunverulega þörf.
Hvernig brandr vísitalan hjálpar
brandr vísitalan metur núverandi styrk vörumerkisins, greinir veikleika og tækifæri og styður upplýsta ákvörðun um næstu skref.
Employer Index
Elskar starfsfólkið þitt vörumerkið sitt?
Trú starfsfólks á vörumerkið, tilgang þess og framtíðarsýn eykur traust, tryggð og meðmæli. Þannig býrð þú tilfleiri merkisbera!
01 · Vídd
Vörumerki
Skiljum tengsl starfsfólks og álit þess á vörumerkinu. Skilur það og trúir á vörumerkjaloforðið. Hér er horft á innri skýrleika, ekki ytri skilaboð.
02 · Vídd
Mannauður
Hvernig er starfsfólk að upplifa fyrirtækið sem vinnuveitenda. Horft er til persónubundinnar upplifunar og svo upplifun af vinnustaðnum.
03 · Vídd
Jafnrétti
Hvort loforð um trúverðugleika, tækifæri og inngildingu endurspeglist í upplifun starfsfólks, ekki aðeins í ytri samskiptum.
Prófaðu ókeypis
Sjáðu bilið milli þess sem vörumerkið lofar og þess sem starfsfólkið upplifir.
Mælaborðið umbreytir gögnum í skýra innsýn sem styður betri ákvarðanir og markvissar umbætur.
Byrjaðu að mæla
.png)
Framkvæmdastjórn / stjórn
Meta innleiðingu á stefnu
Áskorunin
Hefur nýja stefnan náð fótfestu innan fyrirtækisins eða lifir hún aðeins á kynningarglærunum?
Hvernig brandr vísitala vinnustaðar hjálpar
brandr vísitala vinnustaðar mælir hvernig stefnan skilar sér til ólíkra hópa og stjórnunarstiga og sýnir hvar innleiðing eða upplýsingaflæði stöðvast.
Forrysta í mannauðsmálum
Forgangsraða umbótum
Áskorunin
Greina hvað hefur mest áhrif á upplifun starfsfólks og hvar þörfin fyrir umbætur er mest.
Hvernig brandr vísitalan hjálpar
brandr vísitala vinnustaðar greinir styrkleika, veikleika og samræmi við ytra vörumerkið. Niðurstöðurnar sýna hvað ætti að setja í forgang og skapa grunn að markvissum aðgerðum.
Markaðsstjóri / fjármálastjóri
Prófa loforðið áður en fjárfest er í herferð
Áskorunin
Staðfesta að upplifun starfsfólks styðji loforð herferðarinnar áður en verulegum fjármunum er varið í birtingar.
Hvernig brandr vísitalan hjálpar
brandr vísitala vinnustaðar mælir bilið milli loforðsins og raunverulegrar upplifunar starfsfólks. Ef bilið er of stórt er hægt að bregðast við áður en herferðin fer í loftið.
Sameiginleg aðferðafræði
Tvær vísitölur, ein traust aðferðarfræði
Báðar vísitölurnar byggja á sama rannsóknarlíkani. Það grundvallast á kenningum Aaker, Keller og Kapferer um vörumerkjavirði og hefur verið þróað og sannreynt með rannsóknum á íslenskum markaði í yfir 10 ár.
Viðhorfshópurr
Þegar þess þarf þá er hægt að nota viðhorfshóp brandr en það er hópur rúmlega 3þ sannreyndra íslenskra svarenda. Niðurstöðurnar eru vegnar eftir lýðfræðilegri samsetningu þjóðarinnar. Í brandr vísitölu vinnustaðar svarar starfsfólk fyrirtækisins og svörin eru að fullu nafnlaus.
Könnun
brandr vísitalan mælir 30 þætti í fjórum víddum en brandr vísitala vinnustaðar mælir þrjár víddir. Sama könnun er lögð fyrir svo niðurstöðurnar séu samanburðarhæfar milli tímabila og ára.
Skor
Tölfræðilegt líkan reiknar eitt heildarstig á kvarðanum 0–100 ásamt niðurstöðum fyrir hverja vídd, greiningu eftir hópum og viðmiðum fyrir flokkinn.
Bera saman
Niðurstöðurnar má bera saman við viðkomandi flokk, helstu samkeppnisaðila, fyrri mælingar og vísitölurnar tvær innbyrðis.
Opnaðu mælaborðið
Öll innsýn á einum stað
Sjáðu á einum stað hvernig stjórnendur, starfsfólk og viðskiptavinir upplifa vörumerkið. Greindu hvar ytri ímynd og innri upplifun fara saman og hvar bil er þar á milli.
01
Sjáðu bilið á milli innri og ytri upplifunar
Berðu saman hvernig stjórnendur, starfsfólk og viðskiptavinir upplifa vörumerkið. Sjáðu hvar upplifun þeirra fer saman og hvar bilið liggur.
Ytri brandr vísitala og innri, brandr vísitala vinnustaðar, hlið við hlið
Samræmi milli teyma í einni svipan
Sjáðu hvar upplifun starfsfólks víkur frá vörumerkjaloforðinu

02
Sjáðu hvað byggir upp traust
Greindu hvaða þættir styrkja traust, tryggð og vörumerkið til lengri tíma. Sjáðu hvað hefur mest áhrif á niðurstöðuna og beindu fjárfestingu þangað sem hún skilar mestum árangri.
Drifkraftagreining þvert á allar fjórar víddir
Tölfræðileg marktækni, ekki aðeins huglægt mat
Skýr tengsl við hegðun og árangur

03
Fylgstu með þróuninni yfir tíma
Vörumerkjauppbygging er langtímaverkefni. Fylgstu með þróun milli mælinga, greindu niðurstöður eftir hópum og sjáðu hvaða aðgerðir og herferðir skila árangri.
Breytingar milli mælinga, ásamt öryggisbilum
Greining eftir svæði, aldri, hlutverki og starfsaldri
Rekjanleg áhrif einstakra herferða

04
Réttar upplýsingar til rétta fólksins
Búðu til skýrslur og mælaborð fyrir ólíka notendur. Flyttu niðurstöður út í PDF fyrir stjórnarfundi, deildu lifandi tenglum með samstarfsaðilum og sendu lykilmælikvarða beint í Slack eða Teams.
PDF-skýrslur fyrir stjórnarfundi með einum smelli
Deilanleg mælaborð með aðgangi eftir hlutverkum
Innbyggðar tengingar við H3, Kjarna, Slack og Microsoft Teams o.fl.
.png)
Testimonial
See what others say about us
The strategic positioning we wrote was one sentence long: The rental brand built for the people who live here.
That sentence did three useful things at once. It told Icelanders the brand was for them. It told tourists the brand was vetted by locals — a stronger trust signal than any rating system. And it gave the operations team a North star for every decision downstream: if it doesn't serve the people who live here, don't ship it.
That sentence did three useful things at once. It told Icelanders the brand was for them. It told tourists the brand was vetted by locals — a stronger trust signal than any rating system. And it gave the operations team a North star for every decision downstream: if it doesn't serve the people who live here, don't ship it.
Þetta er ein af öflugustu aðferðunum sem ég hef rekist á þegar kemur að því að mæla heilbrigði vörumerkja innbyrðis, mér líkar mjög vel hvernig hún tengir styrk vörumerkisins beint við árangur starfsmanna.

Christopher Rastin
Head of Research · E.ON
Fjöldi fyrirtækja sem keyra vísitölurnar
200+ íslensk fyrirtæki
Notað af
Eitt gagnvirkt vefviðmót
Ákrifendur fá aðgang að brandr vefviðmóti þar sem hægt er að greina niðurstöður eftir víddum, bera vörumerkið saman við samkeppnina og fylgjast með þróun þess yfir tíma. Þar birtast niðurstöður brandr vísitölu og brandr vísitölu vinnustaðar ásamt púlsum og bygljum, sem aðeins viðkomandi fyrirtæki hefur aðgang að.

Höfum samband
Vörumerkið þitt á skilið 30 mínútna samtal.
Hvort sem þú vilt mæla hvar vörumerkið þitt stendur, byggja sterkari stefnu eða sjá hvernig þú stendur miðað við samkeppnina, þá byrjar það á samtali. Enginn sölupitch. Bara heiðarleg skoðun á stöðu þinni og hvar við gætum hjálpað.