Prepared with Power.
Krios var í uppbyggingu sem nýtt innviðavörumerki án mótaðrar markaðsstöðu eða fyrra auðkenniskerfis. Verkefnið var að byggja vörumerkið frá grunni — skilgreina hvað Krios stendur fyrir, hvernig það aðgreinir sig og hvernig sérþekking á orku, landi og innviðum getur orðið að skýru loforði fyrir alþjóðlegan markað.
Frá nýju fyrirtæki yfir í fullmótað innviðavörumerki.
Innri viðtöl
Ytri markaðsgreining
Vörumerkjastefna og staðfærsla
Fullt auðkenniskerfi

01 · ÁSKORUNIN
A new infrastructure company needed a position before the market defined it.
Krios hafði sérþekkingu og skýra viðskiptahugmynd, en ekkert mótað vörumerki sem gæti tengt saman orkukerfi, land, leyfisferli og hagsmunaaðila í eina skýra sögu. Áskorunin var að byggja stöðu frá grunni sem væri trúverðug fyrir tæknilega flókinn markað, aðgreinandi gagnvart hefðbundnum landþróunaraðilum og nægilega sveigjanleg til að styðja við alþjóðlegan vöxt.
02 · RANNSÓKN OG INNSÝN
Við byrjuðum á því að skilja kerfið sem Krios þurfti að tengja saman.
Innri viðtöl og ytri markaðsgreining voru notuð til að kortleggja hlutverk Krios, þarfir markaðarins og þá staði þar sem fyrirtækið gæti skapað raunverulega sérstöðu. Rannsóknin leiddi í ljós að verðmætið lá ekki aðeins í landi eða aðgangi að orku, heldur í því að samræma flókin skilyrði snemma svo verkefni væru raunhæf frá fyrsta degi.
Innsýn eitt
Readiness was the real product.
Á markaði þar sem stafræn innviðaverkefni þurfa orku, land, leyfi og samráð að falla saman, er tilbúið og raunhæft framkvæmdarumhverfi sjálft lykilverðmætið.
Innsýn tvö
Complexity had to be resolved early.
Krios gat aðgreint sig með því að sameina orkuþekkingu, land og hagsmunaaðila fyrr í ferlinu en hefðbundnir þróunaraðilar.
Innsýn þrjú
Confidence was the outcome.
Markaðurinn þurfti ekki fleiri loforð um möguleika, heldur traustan grunn sem gerir flókin verkefni framkvæmanleg og langtímahæf.
Stefnumótandi hreyfing
From land development to Prepared with Power.
Stefnumótunin færði Krios frá almennri hugmynd um innviða- eða landþróun yfir í sértæka stöðu: land sem er undirbúið með orku og tilbúið fyrir flókna stafræna innviði. Brand territory varð „Prepared with Power“ og vörumerkjaloforðið „Foundations you can build on with confidence.“ Staðfærslan gerir orkuþekkingu og snemmbæra samræmingu að kjarnanum í því sem Krios býður markaðnum.
04 · AUÐKENNISKERFI
A connected system for a brand built around alignment.
Sjónræna kerfið var byggt frá grunni utan um hugmyndina um tengingu og samræmingu. Merkið er myndað úr mjúkum hnútum sem tengjast í eina heild og mynda K-form, sem vísar til þess hvernig Krios sameinar flókna þætti í eitt framkvæmanlegt kerfi.
Fjólublá litapalletta, hringlaga form, mynstur, tákn og Satoshi-letur skapa nútímalegt og tæknilegt en jafnframt aðgengilegt vörumerki sem getur virkað á vef, í kynningum, viðskiptaskjölum og alþjóðlegum samskiptum.
Fjólublá litapalletta, hringlaga form, mynstur, tákn og Satoshi-letur skapa nútímalegt og tæknilegt en jafnframt aðgengilegt vörumerki sem getur virkað á vef, í kynningum, viðskiptaskjölum og alþjóðlegum samskiptum.


Hönnunarreglur
Nodes, connections and flow are the central visual idea. Graphic elements are derived directly from the logomark and can work as patterns, image masks, interface elements and framing devices. The system should always feel precise, connected and confident rather than decorative.

06 · NIÐURSTÖÐUR
Frá hugmynd og sérþekkingu yfir í fullmótað alþjóðlegt vörumerki.
Verkefnið skilaði Krios heildstæðu vörumerki sem getur farið á markað með skýra stöðu, sameiginlegt tungumál og sjónrænt kerfi. Prepared with Power varð rauði þráðurinn í gegnum staðfærslu, loforð, tón og hönnun.
Brand territory — Prepared with Power
Brand promise — Foundations you can build on with confidence.
Positioning — deep expertise in power and energy systems, with early alignment of land, permitting and stakeholder requirements
Personality — Assured · Thoughtful · Driven · Principled
Tone — Deliberate · Accessible · Responsible · Strategic
Complete identity system — logo, typography, color palette, graphic elements, patterns, icons and applications
Höfum samband
Vörumerkið þitt á skilið 30 mínútna samtal.
Hvort sem þú vilt mæla hvar vörumerkið þitt stendur, byggja sterkari stefnu eða sjá hvernig þú stendur miðað við samkeppnina, þá byrjar það á samtali. Enginn sölupitch. Bara heiðarleg skoðun á stöðu þinni og hvar við gætum hjálpað.
