Örugg og rafmögnuð framtíð.

Orkubú Vestfjarða var traust og rótgróið fyrirtæki með sterka tengingu við samfélagið, en vörumerkið var orðið íhaldssamt og lítið sýnilegt. Verkefnið var að færa styrkleikana skýrar fram, skerpa hlutverk Orkubúsins á Vestfjörðum og byggja vörumerki sem tengir saman áreiðanleika, samfélag og framsækna orkuuppbyggingu.

Tveimur árum síðar hafði vörumerkið styrkst á lykilsviðum.

+5 pt
Heildarskor
+8 pt
Ímynd & skynjun
+6 pt
Samfélagsleg ábyrgð
+19 pt
Tryggð

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Úr óþekktu vörumerki í fremstu röð

34%
Vörumerkjavitund - meðaltal í flokknum 18%
+47pt
brandr vísitala hækkar á milli ára
1.2k
Google umsagnir · 4,8 meðaleinkunn á 12 mánuðum
2.4M
Fjöldi birtinga á fyrsta ársfjórðungi

Traust og rótgróið — en fast í gömlum venjum.

Orkubú Vestfjarða hafði sterka tengingu við nærsamfélagið og naut trausts sem rótgróið þjónustufyrirtæki. Á sama tíma var vörumerkið lítið sýnilegt, íhaldssamt og ekki nægilega skýrt í því hvað það stóð fyrir eða hvernig það ætlaði að mæta breyttum þörfum samfélagsins.

Áskorunin var að færa OV inn í nútímann án þess að missa þann áreiðanleika og samfélagslega styrk sem þegar var til staðar — og byggja skýrari stöðu sem gæti borið bæði framtíðaruppbyggingu og aukna samkeppni.

44/100

Þrátt fyrir sterkt nafn og rótgróna stöðu skorti vörumerkið skýra sérstöðu í huga viðskiptavina.

46/100

Sérsniðin þjónusta

Við fundum styrkinn sem var þegar til staðar — en sást ekki nógu skýrt.

Rannsóknin sameinaði innri rýni, markaðsrýni og ytri rýni. Viðtöl við starfsfólk og viðskiptavini, Brandr Index, samkeppnisgreining og rýnihópur voru notuð til að skilja bæði sjálfsmynd Orkubúsins og hvernig vörumerkið birtist út á við.

Traustið var styrkurinn — en vörumerkið var orðið íhaldssamt.

Starfsfólk lýsti Orkubúinu sem traustu, ábyrgu og mikilvægu fyrir Vestfirði, en einnig sem rótgrónu og föstu í gömlum venjum. Það skapaði sterkan grunn, en minni tilfinningu fyrir framsækni og breytingum.

Vestfirðirnir voru sterkasta sérstaðan.

Viðskiptavinir á svæðinu tengdu Orkubúið við heimabyggð, samfélagslega ábyrgð og mikilvægt hlutverk í uppbyggingu Vestfjarða. Þetta var eitthvað sem samkeppnisaðilar gátu ekki auðveldlega eignað sér.

Vörumerkið þurfti að verða sýnilegra og meira í takt við tímann.

Bæði starfsfólk og viðskiptavinir kölluðu eftir skýrari upplýsingagjöf, meiri sýnileika og framsýnni nálgun. Orkubúið var talið mikilvægt fyrir samfélagið, en vörumerkið endurspeglaði ekki nægilega þann kraft eða framtíðarhlutverk.

Frá rótgrónu orkufyrirtæki yfir í drifkraft Vestfjarða.

Stefnumótunin færði Orkubú Vestfjarða frá því að vera fyrst og fremst skilgreint út frá afhendingu og rekstri yfir í skýrara hlutverk í samfélaginu. Kjarninn varð „Örugg og rafmögnuð framtíð“ — með áherslu á að lýsa leiðina, styrkja innviði, auka lífsgæði og tala óhrætt fyrir orkumálum Vestfjarða.

Þannig varð samfélagið sjálft hluti af staðfærslunni: Orkubú Vestfjarða sem áreiðanlegur samstarfsaðili, rödd landshlutans og drifkraftur framþróunar á svæðinu.

brandr didn't write us a slogan. They wrote us a filter. Every product decision we've made in eighteen months has gone through "would the people who live here actually want this?" — and most of the answers have been clearer than we expected.

Sigurður Hannesson
CEO · Blue Car

Vestfirskur kraftur fékk skýrara sjónrænt form.

Nýja auðkenniskerfið byggir á sögu Orkubús Vestfjarða en færir hana í nútímalegra og samræmdara form. Uppfært myndmerki vísar bæði í upphafsstafina OV, vatnsdropann og orkuna sem fyrirtækið framleiðir, á meðan ljósblár og dökkblár mynda skýran grunn fyrir heildina.

Kerfið er síðan byggt út með mynstri, táknum, ljósmyndastíl og Inter-letri sem tengja saman náttúru, samfélag og starfsemi. Þannig verður vörumerkið bæði auðþekkjanlegra og sveigjanlegra yfir alla snertifleti.
Myndmerkið og form þess mynda grunn að heildarkerfinu. Ljósblár og dökkblár eru aðallitir, stuðningslitir bæta við sveigjanleika og mynstur byggir á formum úr merkinu. Ljósmyndir eiga að vera úr raunverulegu starfsumhverfi og sýna náttúru, samfélag og starfsemi í björtu og hlýju yfirbragði.

Í hverja hillu.

Við vinnum í áföngum frekar en spretti, með skýrri afhendingu í hverjum áfanga, eftirlitspunkti hjá viðskiptavininum og hreinni afhendingu til næsta stigs. Svona fór Bónus í gegnum okkar.
01 · janúar — febrúar 2024 · 6 vikur

Rannsókn og flokksrýni

Brandr Index grunnlína fyrir matvöruflokkinn, grunnrannsókn meðal kaupenda og starfsfólks, og viðtöl við Bónus teymið. Afurð: flokksskýrsla og eins síðu staðfærsluminnisblað.
02 · mars — apríl 2024 · 6 vikur

Stefna og staðfærsla

Staðfærsluvinnustofur með stjórnendum Bónus, vörumerkjabyggingarrýni og raddblærstefna. Afurð: samþykkt vörumerkjastefna og grænt ljós fyrir auðkennisáfangann.
03 · maí — ágúst 2024 · 14 vikur

Auðkenniskerfi

Fínstilling merkis, litar, leturs og ljósmyndastefnu með Saffron, útfært í verslun, umbúðum og stafrænu. Afurð: vörumerkjahandbók og eignasafn.
04 · september — desember 2024 · rúllandi

Útfærsla

Skiltagerð og leiðbeiningar í verslun, umbúðir fyrir eigin vörumerki, herferð og starfsmannaefni, raðað eftir mest sóttum yfirborðum fyrst. Afurð: samkvæmt vörumerki á hverjum snertipunkti viðskiptavinar.

Tveimur árum síðar hafði vörumerkið styrkst á lykilsviðum.

Brandr Index sýnir skýra jákvæða þróun frá 2023 til 2025. Heildarskor hækkar, ímynd og samfélagsleg ábyrgð styrkjast og undirliggjandi tengsl við vörumerkið færast í jákvæðari átt. Sérstaða stendur þó nánast í stað og er áfram skýrasta áskorunin.
Heildarskor - 62 → 67 +5 pt
Ímynd & skynjun - 60 → 68 +8 pt
Samfélagsleg ábyrgð - 64 → 70 +6 pt
Tryggð - 0 → 19 +19 pt
Meðmæli - -11 → -4 +7 pt
Traust - -16 → -7 +9 pt
Brandr vísitala 2025
67
Samfélagsleg ábyrgð 2025
70
Sérstaða 2025
45

Vörumerkið þitt á skilið  30 mínútna samtal.

Hvort sem þú vilt mæla hvar vörumerkið þitt stendur, byggja sterkari stefnu eða sjá hvernig þú stendur miðað við samkeppnina, þá byrjar það á samtali. Enginn sölupitch. Bara heiðarleg skoðun á stöðu þinni og hvar við gætum hjálpað.