Vörumerki skipta máli

Í síðustu viku hélt brandr fyrsta leiðtogafund vetrarins þar sem fjallað var um mikilvægt samspil vörumerkis, mannauðs og menningar fyrirtækja.
Innri markaðssetning
By
Íris Mjöll Gylfadóttir
.
7 min read
.
September 17, 2026
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Vörumerki skipta máli

Fyrsti leiðtogafundur vetrarins

Í síðustu viku hélt brandr fyrsta leiðtogafund vetrarins þar sem fjallað var um mikilvægt samspil vörumerkis, mannauðs og menningar fyrirtækja. Þessi þrenning er órjúfanleg heild sem hefur áhrif á bæði innri og ytri starfsemi fyrirtækisins. Áhuginn á viðfangsefninu leyndi sér ekki þar sem fullt var á viðburðinn og komust færri að en vildu.

Stolt af vinnustaðnum

Það vilja allir vera stoltir af vinnustaðnum sínum og vinna hjá sterku vörumerki. En hvað er það sem einkennir sterk vörumerki? Rannsóknir sýna að sterk vörumerki hafa öll sterka staðfærslu á markaði vegna þess meðal annars að þau ná að aðgreina sig vel frá samkeppninni og tala skýrt til sinna markhópa. Þegar talað er um staðfærslu vörumerkis er verið að vísa í hugrenningartengsl sem eiga sér stað í huga markhópa þegar vörumerkið kemur upp. Þessi hugrenningartengsl gagnvart vörumerkinu eru bæði tilfinningaleg (huglæg) og rökræn (hlutlæg). Sterk vörumerki mynda bæði afgerandi rökræn og tilfinningaleg tengsl í huga fólks. Það er algengt að fyrirtæki á neytendamarkaði leggi meiri áherslu á tilfinningatengsl við viðskiptavini þar sem vörumerkið þarf að vera þekkt og veita tilfinningu fyrir t.d. lífstíl eða gildum sem skipta viðskiptavininn máli. Á hinn bóginn leggja fyrirtæki á fyrirtækjamarkaði oft meiri áherslu á rökræna þáttinn þar sem það gæti verið minni þörf á tilfinningalegum tengslum.

Þegar fjallað er um upplifun starfsfólks á vörumerkinu er talað um sjálfsmynd vörumerkisins en ímynd þegar fjallað er um upplifun viðskiptavina. Það er mikilvægt að það sé skörun á milli sjálfsmyndar og ímyndar þannig að starfsfólk og viðskiptavinir upplifi vörumerkið með sem líkustum hætti, en því er sjaldnast þannig varið sem kallar á greiningu á þeim mismuni og úrbótavinnu. Við hjá brandr mælum þessa þætti fyrir viðskiptavini okkar með brandr vísitölunni (ímynd) og brandr vísitölu vinnustaðar (sjálfsmynd).

Samspil vörumerkis og mannauðs

Samspil vörumerkis og mannauðs á jafnt við hvort sem um er að ræða fyrirtæki sem starfa á neytendamarkaði eða fyrirtækjamarkaði þar sem sömu grundvallarreglur gilda almennt um öll fyrirtæki. Uppbygging vörumerkis skiptir öllu máli ef ná á langtíma árangri í rekstri.

Íris Mjöll Gylfadóttir

Íris er framkvæmdastjóri brandr og leiðir daglegan rekstur, þjónustu við viðskiptavini og framkvæmd Bestu íslensku vörumerkjanna. Hún hefur stýrt fjölda vörumerkjaverkefna fyrir íslensk fyrirtæki, allt frá stöðumati og staðfærslu til endurmörkunar.

Hún skrifar hér um vörumerki vinnustaða, tengsl mannauðs og vörumerkja og það sem kemur fram á leiðtogafundum brandr.

Notes from the studio, monthly.

One email a month. New writing, BÍV updates, occasional methodological notes from the Index team. Roughly 1,400 readers across Iceland, Europe, and a surprising number of brand strategists in New York.
Once a month · No spam · Unsubscribe anytime