Sterkt vörumerki veitir samkeppnisforskot

Vörumerki snýst alltaf um fólk
Vörumerki snýst alltaf um fólk, sterkt vörumerki býr í huga fólks hvort sem það er starfsfólk, viðskiptavinir eða aðrir hagaðilar.
Rannsóknir sýna að þegar starfsfólk upplifir sig sem hluta af vörumerki fyrirtækisins verður til samheldni og stolt sem eykur starfsánægju. Þetta viðhorf ýtir undir sterka vinnustaðamenningu og styrkir orðspor fyrirtækisins sem skilar sér í betri rekstri og aukinni framlegð.
Fundur með tilnefndum vörumerkjum
Þann 28. apríl hélt brandr fund með þeim vörumerkjum sem hafa verið tilnefnd til Bestu íslensku vörumerkjanna í flokknum Vörumerki vinnustaðar. Markmið þessa fundar var að læra af þeim bestu og heyra hvernig þau sjá tengingu vörumerkis, mannauðs og menningar.
Niðurstaða fundar: Til að búa til sterkt vörumerki vinnustaðar þurfa vörumerki, mannauður og menning að vinna saman. Einungis þannig verður til sterkt vörumerki sem talar bæði inn á við til starfsfólks og út á við til viðskiptavina.
Þau vörumerki vinnustaðar sem skara fram úr eiga það sameiginlegt að samstarf markaðs- og mannauðsdeildar er náið og hjá sumum þeirra er vörumerkið sameiginlegt verkefni allra deilda. Það þykir mikilvægt að hugsa ekki um vörumerki vinnustaðar sem hliðarverkefni markaðsdeildar eða mannauðsdeildar heldur sem sameiginlegt verkefni allra innri hagaðila.
Mannauðsstefna og vörumerki í fullu samræmi
Mannauðsstefna, gildi, stjórnun og menning þurfa að vera í fullu samræmi við heildarstefnu vörumerkisins. Til að menningin styðji sem best við vörumerkið þarf krafturinn í uppbyggingunni að koma frá stjórnendum. Stjórnendur eiga að nýta styrkleika sína og annarra til að innleiða sterka menningu sem dansar í takt við vörumerkið. Þar sem menning og vörumerki eru í takt er mun auðveldara fyrir starfsfólk að tala rödd vörumerkisins út á við.
Þau fyrirtæki sem enn hugsa í síló-um eru ekki að ná sambærilegum árangri við uppbyggingu vörumerkisins vegna þess að samtalið á milli mannauðs, markaðsmála og stjórnenda er takmarkaðra. Hjá þessum fyrirtækjum eru markaðs- og mannauðsmál oft undanskilin í heildarstefnu félagsins.
Fyrirtæki sem þekkir ekki upplifun starfsfólks af eigin vörumerki getur verið blint á mikilvægan hluta af stöðu sinni á markaði. Það á ekki að vera munur á því hvernig starfsmenn líta á vörumerkið og hvernig vörumerkið birtist út á við!
Það er mikilvægt að gleyma því ekki að starfsfólk er einn mikilvægasti markhópur allra vörumerkja. Vörumerki sem byggir á gildum, menningu og samheldni er sterkara og á meiri möguleika á að vaxa til framtíðar.
Tilvitnanir
„Þegar markaðsmál og mannauðsmál eru ekki með í heildarstefnu félagsins þá vantar meðvitund um hvað þetta þarf að hanga saman“ (Sigrún Ósk Jakobsdóttir, Advania).
„Ef fólk þekkir ekki sína menningu og innri vörumerkjastyrk, þá er það blint á stóran hluta samkeppnisumhverfisins“ (Elínborg Valdís Kvaran, Arion banki).
„Áskorunin er að draga alla að borðinu og fá þá til að anda vörumerkinu“ (Ólöf Steinunn Lárusdóttir, Blue Car Rental)
„Það sem er gert innanhúss þarf að stuðla að því að hver starfsmaður lifi og andi vörumerkinu og geti talað máli þess“ (Sigurbjörn Ari Sigurgjörnsson, NOVA).
„Það eiga allir vörumerkið, eins og það eiga allir menninguna“ (Sigrún Ósk Jakobsdóttir, Advania).
„Við viljum ekki bara vita hvað viðskiptavinum finnst um vörumerkið, heldur líka hvernig starfsfólkið upplifir það“ (Arinbjörn Hauksson, ELKO).
„Stolt af vörumerkinu og sterk tenging við vinnustaðamenninguna skilar sér skýrt í aukinni virkni og þátttöku starfsfólks“ (Freyja Eiríksdóttir, Nox Medical)
„Það á ekki að vera munur á því hvernig starfsmenn líta á vörumerkið og hvernig vörumerkið birtist út á við“ (Ágústa Björg Bjarnadóttir, Sjóvá)
„Góð menning er samkeppnisforskot“ (Elínborg Valdís Kvaran, Arion banki)


