Umbreyting í orkuiðnaði

„Umbreyting í orkuiðnaði“ var þema ráðstefnunnar CHARGE, Powering Energy Brands, sem haldin var í maí í Houston Texas á vegum brandr vörumerkjastofu.
Umfjöllun og pistlar
By
Íris Mjöll Gylfadóttir
.
7 min read
.
September 17, 2026
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Umbreyting í orkuiðnaði

CHARGE í Houston

„Umbreyting í orkuiðnaði“ var þema ráðstefnunnar CHARGE – Powering Energy Brands, sem haldin var nú í maí í Houston Texas á vegum Brandr vörumerkjastofu. Þetta er í fjórða sinn sem ráðstefnan er haldin í Houston og fór hún fram í nýsköpunarmiðstöðinni Ion við Rice háskóla. Ráðstefnan hefur farið fram árlega í Evrópu frá árinu 2016, og verður haldin í Istanbul í október næst komandi.

Til Houston mættu stjórnendur, sérfræðingar, fræðimenn og markaðsfólk úr öllum geirum orku umhverfisins í Bandaríkjunum (sem dæmi EDP Renewables, NRG, APG&E).

Þessir aðilar voru allir sammála um að það eru miklar breytingar í geiranum og telja hagaðilar að uppbygging orkugeirans felist ekki lengur bara í framleiðslu og afhendingu orku heldur einnig í samböndum, gildum og mannlegum tengslum.

Orka er ekki bara hrávara

Í stað þess að líta á orku sem hrávöru sem ekki er hægt að markaðssetja var talað um mikilvægi þess að ná til viðskiptavina með því að skapa sérstöðu á markaði. Orkugeirinn þarf að brjótast út úr norminu og til þess er þörf á “uppreisnargjarnri” hugsun (rebellous thinking) og var það rauður þráður í mörgum fyrirlestrum og pallborðum ráðstefnunnar, ekki til að trufla heldur til að auka framsýni og spyrna gegn úreltum hugmyndum. „Uppreisnargjarn“ í þessu samhengi stendur fyrir framsýni og hugrekki.

Í dag eru gerðar kröfur um meira en bara áreiðanleika vörunnar og í auknu mæli horft á aðra þætti við val á orkugjafa eins og t.d. uppruna, ímynd, þægindi, verð og samfélagslega ábyrgð.

Vaxandi samkeppni ýtir undir þörf fyrirtækjanna á að þekkja ímynd sína í augum viðskiptavina og annarra hagaðila, bæði inn á við og út á við rétt eins og brandr vísitölur mæla. Þannig getur fyrirtækið m.a. séð hvort það er skörun á milli ímyndar og sjálfsmyndar sem getur hjálpað við stefnumiðaða markaðssetningu.

Það skiptir máli að vörumerkið sé sterkt

Það skiptir máli að vörumerkið sé sterkt:

  • Sterkt vörumerki eykur traust og tryggð viðskiptavina, sem er lykilatriði á markaði þar sem samkeppni er mikil. Á tímum þeirra umbreytinga sem eru að eiga sér stað í orkugeiranum dugar ekki lengur að tala bara í tæknimál, heldur þarf að tala til tilfinninga og gilda viðskiptavina og spegla menningu fyrirtækisins, heilindi og sjálfbærni.
  • Sterkt vörumerki eykur aðgreiningu á markaði og styrkir stöðu þess gagnvart samkeppnisaðilum. Aðgreining er ekki bara gerð með vöruframboði heldur einnig með því að búa til ímynd í kringum vörumerkið í hugum viðskiptavina. Ímynd sem tekur t.d. tillit til sjálfbærni og samfélagslegra gilda hún getur verið skemmtileg, fáguð eða alvarleg. Allt eftir því hver persónuleiki og tónn vörumerkisins á að vera.
  • Vörumerki mannauður og menning er nátengt. Sterkt vörumerki styrkir því einnig innra samfélag fyrirtækisins. Starfsmenn sem lifa gildi fyrirtækisins og finna tilgang í störfum sínum mælast sterkir merkisberar fyrirtækisins (brand ambassadors).
  • Sterkt vörumerki laðar til sín hæfileikaríkt starfsfólk og heldur frekar í það góða sem er til staðar ásamt því að því að laða til sín nýja viðskiptavini og halda frekar í sína gömlu góðu viðskiptavini.
  • Sterkt vörumerki eykur verðmæti fyrirtækisins til lengri tíma sem auðveldar fjármögnun þegar á þarf að halda og eykur meðbyr hagaðila ef fara á í stór verkefni.

Viðurkenningar CHARGE

CHARGE hefur veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu frá árinu 2016 en nú voru þau afhent í fyrsta skiptið í Bandaríknum. Viðurkenninguna “Retailer Brand of the Year” hlaut Reliant Energy (dótturfyrirtæi NRG Energy) og viðurkenninguna “Utility Brand of the Year” fékk FortisBC sem er kanadískt orkufyrirtæki.

CHARGE heiðraði einnig nokkra framtíðarleiðtoga, “Rising Stars in Energy Branding”, en ungt fólk eru mikilvægir þátttakendur í þeim umbreytingum sem eru að eiga sér stað og komu þau m.a. frá Octopus Energy US, EIQdigital og Schneider Electric.

Orkugeirinn er ekki bara tæknilegur, hann er líka mannlegur!

Íris Mjöll Gylfadóttir

Íris er framkvæmdastjóri brandr og leiðir daglegan rekstur, þjónustu við viðskiptavini og framkvæmd Bestu íslensku vörumerkjanna. Hún hefur stýrt fjölda vörumerkjaverkefna fyrir íslensk fyrirtæki, allt frá stöðumati og staðfærslu til endurmörkunar.

Hún skrifar hér um vörumerki vinnustaða, tengsl mannauðs og vörumerkja og það sem kemur fram á leiðtogafundum brandr.

Notes from the studio, monthly.

One email a month. New writing, BÍV updates, occasional methodological notes from the Index team. Roughly 1,400 readers across Iceland, Europe, and a surprising number of brand strategists in New York.
Once a month · No spam · Unsubscribe anytime