Úr stefnu í markaðslegar ákvarðanir

Íslandsbanki Hagasmára 3, 9 hæð Norðurturni, þann 11. nóvember. Húsið opnar kl 8:15 þar sem boðið verður upp á morgunhressingu, formleg dagskrá hefst kl 9 og stendur til kl 10.

Um viðburðinn

Þegar ákvarðanir, þjónusta og samskipti endurspegla stefnu fyrirtækisins verður skýrara fyrir hvað það stendur og trúverðugleiki vörumerkisins styrkist. Skýr stefna hjálpar jafnframt stjórnendum að forgangsraða fjármunum og verkefnum og gefur starfsfólki sameiginlega sýn til að vinna eftir.
‍
Þegar þetta vinnur saman þá hjálpar það fyrirtækjum að
‍
• Byggja upp traust með því að láta orð og athafnir fara saman.
• Forgangsraða fjármunum og verkefnum út frá skýrri stefnu.
• Sameina starfsfólk um fyrir hvað fyrirtækið stendur og hvernig það á að birtast í daglegu starfi.

Á fundinum deila leiðtogar þekktra íslenskra fyrirtækja reynslu sinni af því að láta stefnu móta markaðslegar ákvarðanir, samskipti og upplifun viðskiptavina. Hvernig öðlast stefnan líf í orði og mynd, þjónustu og daglegu starfi og hvernig tryggjum við að það sem fyrirtækið miðlar sé í takt við það sem fólk upplifir?

• Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka
• Edda Hermannsdóttir, forstjóri Apótekarinn
• Hörður Ingi Þórbjörnsson, framkvæmdastjóri Orkunnar
• Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri Bónuss
• María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása

Tryggðu þér sæti!

Ekki viss um hvaða þjónustu þú þarft?

Bókaðu 30 mín spjall við sérfræðing hjá brandr.