VÖRUMERKI ERU VÍTAMÍN

Rétt eins og með vítamínin sést árangur vörumerkjavinnu ekki endilega samdægurs en með þrotlausri vinnu skilar hún sér í ánægðari og tryggari viðskiptavinum og sterkri staðfærslu.
Vörumerkjastefna
By
Elías Ýmir Larsen
.
7 min read
.
September 17, 2026
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
VÖRUMERKI ERU VÍTAMÍN

Ert þú dugleg/ur að fóstra vörumerkið þitt?

Ert þú dugleg/ur að taka vítamínin þín? Ég gleymi því stundum. En ég reyni að taka þau af því að ég veit að þau eru góð fyrir mig og mína heilsu. Árangur vítamína er ekki sýnilegur dag frá degi en til lengri tíma litið veit ég að þau hjálpa kjarnastarfseminni og auka heilbrigði.

Sama má segja um vörumerki. Ert þú dugleg/ur að fóstra vörumerkið þitt? Sumir gleyma því. Það er þó nauðsynlegt. Með því að vera sífellt að mæla, bæta, styrkja og huga að öllum snertiflötum vörumerkisins skilar það árangri og hagnaði til lengri tíma litið. Rétt eins og með vítamínin þá sést árangur vörumerkjavinnu ekki endilega samdægurs en með þrotlausri vinnu skilar það sér t.d. í ánægðari og tryggari viðskiptavinum og sterkri staðfærslu.

En hvað er staðfærsla?

Staðfærsla er sú mynd af vörumerki sem er til staðar í huga viðskiptavina, þ.e. hvernig þeir upplifa, skynja og tengja við vörumerkið á þessum tímapunkti.

Sterk vörumerki vinna út frá því að koma sinni staðfærslu til skila á öllum snertiflötum, hvort sem það er í samskiptum, sölu, markaðssetningu, þjónustu eða öðru.

Með vel skilgreindri stefnu ná sterk vörumerki að skapa þær huglægu tengingar sem þau vilja að einkenni vörumerkið í huga viðskiptavina.

Atriði sem huga þarf að til að byggja upp og viðhalda staðfærslu:

  • Djúp þekking á markhópum
  • Aðgreining frá samkeppni
  • Lausn við vandamálum viðskiptavina séu sett skýrt fram.
  • Áhersla lögð á að skilja áskoranir viðskiptavinarins
  • Skapa eftirminnileg skilaboð

Listinn er ekki tæmandi

Hver er ábati þess að hafa sterka staðfærslu?

  • Vörumerki ná aðgreinandi stöðu á markaði.
  • Auðvelda kaupferli viðskiptavina.
  • Markaðsskilaboð fanga meiri athygli en skilaboð samkeppnisaðila.
  • Ná að keppa á gæðum en ekki verði.
  • Gerir hönnunina enn meira skapandi.

Listinn er ekki tæmandi

Að skapa hina fullkomnu staðfærslu er langtíma verkefni, sem að öllum líkindum endar aldrei. Sterk staðfærsla auðveldar vörumerkjum að taka stórar og viðamiklar ákvaraðnir. brandr vísitalan er mælitæki sem mælir staðfærslu vörumerkja. Vörumerki nýta það til þess að spyrja viðskiptavini sína út í reynslu þeirra og upplifun af viðskiptum við vörumerkið.

Hvað græði ég á að vita hvað viðskiptavinum finnst?

Við fáum oft spurninguna hvað græði ég á því að vita hvað mínum viðskiptavinum finnst?

Niðurstöður úr brandr vísitölunni gefa einstaka mynd á hvernig viðskiptavinir upplifa vörumerki. Með því að búa yfir nægilegri þekkingu á sýn viðskiptavina er hægt að taka öruggari og upplýstari ákvarðanir.

Elías Ýmir Larsen

Elías starfaði hjá brandr frá 2019 til 2025, fyrst sem ráðgjafi í vörumerkjamælingum og síðar sem vaxtarstjóri brandr Index. Hann hafði umsjón með Bestu íslensku vörumerkjunum, vinnustofum, sölu- og markaðsstarfi og vöruþróun.

Elías er hagfræðingur að mennt með meistaragráðu í frumkvöðlafræði og nýsköpun frá Háskólanum í Padova. Greinar hans hér fjalla einkum um stöðugleika vörumerkja, staðfærslu, meðmæli viðskiptavina og tengsl mannauðs og vörumerkja.

Notes from the studio, monthly.

One email a month. New writing, BÍV updates, occasional methodological notes from the Index team. Roughly 1,400 readers across Iceland, Europe, and a surprising number of brand strategists in New York.
Once a month · No spam · Unsubscribe anytime