Skraut eða skipulagssnilld

Hvítur stuttermabolur með prenti kostar frá kr. 756 til kr. 35.385 á Asos. Hvað réttlætir næstum fimmtugfaldan verðmun á hvítum bol? Málið snýst ekki um vöruna heldur vörumerkið.
Vörumerkjastefna
By
Friðrik Larsen
.
7 min read
.
September 17, 2026
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Skraut eða skipulagssnilld

Hvítur bolur og fimmtugfaldur verðmunur

Hvítur stuttermabolur með prenti kostar frá kr. 756 til kr. 35.385 á Asos. Hvað er það sem réttlætir næstum fimmtugfaldan verðmun á hvítum bol? Betri bómull, flottari mynd, hentugra snið? Nei málið snýst ekkert um vöruna heldur vörumerkið. Í þessu endurspeglast kraftur vörumerkja. Þau innihalda margskonar virði fyrir þá sem selja þau og viðskiptavini sem kaupa. Þau eru mikilvæg óáþreifanleg eign sem þarf að stjórna vandlega.

Stefna og skipulag

Orðið “brandr” kemur úr gömlu norsku og þýðir “að brenna”; sbr að marka kýr og kindur til að þekkja hverja frá annarri, en útá það gengur einmitt vörumerkjastjórnun, þ.e. aðgreiningu. Vörumerki er ekki bara myndmerki (logo). Vörumerki (e. brand) er varan sjálf plús áþreifanlegar og óáþreifanlegar víddir sem bætt er við vöruna. Víddirnar aðgreina á einhvern hátt vöru viðkomandi vörumerkis frá öðrum vörum eða þjónustu sem er ætlað að uppfylla sömu þarfir. Aðgreining getur verið virkni eða útlit vörunnar eða t.d táknrænir eða tilfinningalegir eiginleikar, sem varan gefur til kynna.

Uppbygging á sterku vörumerki er langtíma fjárfesting. Kostnaður gerir það að verkum að skoðanir eru skiptar um hvort það sé réttlætanlegt að beita vörumerkjaþróun (e. Branding) og erfitt er að skilja þá langtíma hugsun sem vörumerkjaþróun er. Í slíkri uppbyggingu felst að verið er að fjárfesta í óáþreifanlegri eign en ávinningur er augljós ef vel gengur; sbr. 47 faldur verðmunur fyrir sömu vöruna á hvítum stuttermabol, sama varan en ekki sama brandið.

Vörumerki er list og vísindi

Grunnskilyrði vel heppnaðra vörumerkja er góð vara eða þjónusta sem er studd skapandi hönnun og vel framkvæmdri markaðsstefnu. Og hér komum við að titli greinarinnar. Vörumerki eru nefnilega bæði byggð á góðri grafík og yfirburða stefnu en því miður er einblínt um of á fyrri hlutann og oft ruglað saman myndmerki (e.logo) og vörumerki (e. Brand). Fyrir vikið næst ekki jafn góður langtíma árangur.

Mér finnst gott að lýsa þessu þannig að hönnun án stefnumótunar eru afskornu fallegu blómin. Þau lífga upp á tilveruna og láta öllum líða vel í stuttan tíma. Með stefnumótun þá koma blómin í potti, blómstra oft og lifa lengi.

Friðrik Larsen

Friðrik stofnaði brandr árið 2006 eftir að hann sneri aftur til Reykjavíkur úr doktorsnámi í vörumerkjastefnu. Hann er dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og hefur síðustu tvo áratugi mælt íslensk vörumerki og veitt þeim ráðgjöf; flest þau nöfn sem þú kannast við hafa á einhverjum tímapunkti farið yfir borðið hjá honum.

Hann skrifar hér um það bil einu sinni í mánuði, oftast um vörumerkjastefnu, stundum um verðlagningu, og einu sinni á ári um það sem kom valnefnd BÍV mest á óvart.

Notes from the studio, monthly.

One email a month. New writing, BÍV updates, occasional methodological notes from the Index team. Roughly 1,400 readers across Iceland, Europe, and a surprising number of brand strategists in New York.
Once a month · No spam · Unsubscribe anytime