KitKat - skólabókardæmi um farsælt vörumerki

Saga KitKat er merkileg að mörgu leyti og býður upp á góða innsýn í heim vörumerkja og markaðssetningar.
Vörumerkjastefna
By
Íris Mjöll Gylfadóttir
.
7 min read
.
September 17, 2026
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
KitKat - skólabókardæmi um farsælt vörumerki

Saga KitKat

Saga KitKat er merkileg að mörgu leyti og býður upp á góða innsýn í heim vörumerkja og markaðssetningar. Velgengni vörumerkisins má rekja til hæfni þess í flóknu samspili milli sérstöðu og aðgreiningar. KitKat hefur alla tíð haldið í einfaldleika vörumerkisins.

Upphaf KitKat er rakið til nafnlausrar tillögu frá starfsmanni í Rowntree's York verksmiðjunni snemma á þriðja áratug síðustu aldar. Vörumerkið, sem upphaflega var kynnt sem Rowntree's Chocolate Crisp, tók síðar upp nafnið „KitKat“.

Árið 1957 kemur KitKat með slagorð sitt, "Have a break, have a KitKat’’ eða,,Brjóttu upp daginn með KiKat”. Slagorðið er talið eiga mjög vel við ennþá í dag enda snýr það ekki bara að raunverulegu notagildi vörunnar heldur einnig að því sem menningarlegu fyrirbæri, sem styrkti tengsl KitKat við slökun og hvíld í daglegum venjum.

Nestlé keypti Rowntree árið 1988, en þeim tókst að viðhalda góðri stöðu vörumerkisins þar sem fyrirtækið kafaði djúpt í rætur KitKat og tók sér tíma til að skilja uppruna og sögu vörumerkisins. KitKat hélt áfram að dafna undir nýju eignarhaldi og nýtti sér „tímalausa“ vörumerki sitt á sama tíma og það meðtók markaðsviðmið samtímans.

Sérstaða og aðgreining

Velgengni KitKat felst í hæfni vörumerkisins á því að tengja saman sérstöðu og aðgreiningu.

KitKat skapar sér sérstöðu með því að vera eftirminnilegt og auðþekkjanlegt. Vörumerkinu tókst þetta með einföldu en öflugu myndmerki, litasamsetningu og slagorði.

KitKat er áratugum á undan öðrum vörumerkjum í samspili sérstöðu og aðgreiningar. Vörumerki þurfa að hafa sínar lykiltengingar, gildi og áherslur á hreinu til þess að knýja fram sérstöðu og komast efst í huga neytenda. Vörumerki þurfa einnig að nýta tækifærin þegar þau gefast og styrkja hugrenningatengsl neytenda ennþá betur. KitKat er ekki einstakt vörumerki en það er meira tengt hléum,,breaks’’ en nokkuð annað vörumerki á sínu sviði. Þessi tenging virkar sem aðgreining fyrir KitKat. KitKat einbeitir sér að þessu í markaðssetningu sinni og viðheldur sérstöðunni með þeirri áherslu.

Einfaldleiki sem staðfærsla

KitKat er gott dæmi um það hvernig staðsetning vörumerkja, og mikilvægi einfaldleika og einbeitingar getur stuðlað að góðu vörumerki. Arfleifð KitKat er meira en bara sælgæti – það er skólabókardæmi um hvernig skal varðaveita vörumerki farsællega.

Þessi grein er samantekt af lengri útgáfu Mark Ritson.

Íris Mjöll Gylfadóttir

Íris er framkvæmdastjóri brandr og leiðir daglegan rekstur, þjónustu við viðskiptavini og framkvæmd Bestu íslensku vörumerkjanna. Hún hefur stýrt fjölda vörumerkjaverkefna fyrir íslensk fyrirtæki, allt frá stöðumati og staðfærslu til endurmörkunar.

Hún skrifar hér um vörumerki vinnustaða, tengsl mannauðs og vörumerkja og það sem kemur fram á leiðtogafundum brandr.

Notes from the studio, monthly.

One email a month. New writing, BÍV updates, occasional methodological notes from the Index team. Roughly 1,400 readers across Iceland, Europe, and a surprising number of brand strategists in New York.
Once a month · No spam · Unsubscribe anytime